UPPHAFSSÍÐA
Á döfinni
Fréttir
Kort
Starfsemi í Reykholti
Bakhjarlar
Skipurit
Skipulagsskrá - samn.
Starfið framundan
Eldri viðburðir
Ferðamannaþjónusta
Gisti- og fundaraðstaða
Útgáfur
Námskeið
Rannsóknir
Miðlun
Bókhlaða
Saga Reykholts
Saga Snorrastofu
Starfsmenn
Reykholtskirkja
Heimasíða Reykholts
Tenglar
 

 

 

 

 

Reykholt: Menningar- og ráðstefnusetur

 

Reykholt í Borgarfirði er einn merkasti sögustaður landsins, ekki síst vegna þeirra menningarminja, sem tengjast búsetu Snorra Sturlusonar þar á árunum 1206-1241.

 

Fólk sækir í Reykholt fyrst og fremst vegna sögu staðarins, ekki hvað síst erlendir gestir. Stóra aðdráttaraflið er hið áþreifanlega, þ.e. afar merkar fornminjar (laug, göng, bæjarrústir og heitavatns- og gufustokkar frá tímum Snorra), sem ferðamóttaka Snorrastofu og Þjóðminjasafnið sjá um að kynna fyrir gestum og gangandi.

 

Helstu byggingar í Reykholti eru gamla kirkjan, byggð 1886-87, gamli Héraðsskólinn, byggður 1930-31, húsnæði hótelsins sem reist var á árunum 1965-88 undir heimavist og mötuneyti Héraðsskólans og hin nýja bygging kirkjunnar og Snorrastofu.

 

Þá hefur vaxandi starfsemi Snorrastofu, árleg tónlistarhátíð og tónleikahald allt árið í kirkjunni og starfræksla heilsárs hótels, þar sem haldnar hafa verið hvers kyns samkomur, fundir og ráðstefnur, vakið athygli á Reykholti.

 

Snorralaug

 

Unnið er af fullum krafti að því að efla Reykholt enn frekar. Stoðum er rennt undir einstaka þætti, auk þess sem  staðnum eru lögð til ný verkefni. Sá mikli áhugi sem að undanförnu hefur verið, bæði innanlands og erlendis frá, á að dvelja í Reykholti vegna rannsókna eða funda er einungis upphafið að því sem koma skal. Öll aðstaða mun í framtíðinni verða fyrir hendi fyrir hvers kyns funda- og ráðstefnuhald. Hótelið er opið allt árið og þar er einn salur.

 

Nýr ráðstefnusalur er í Skólahúsinu og í veglegum húsakynnum Snorrastofu, sem formlega voru tekin til notkunar þann 29. júlí 2000, er lesaðstaða, rannsóknarbókasafn og aðstaða fyrir minni fundi.

 

Þá hefur hin nýja kirkja verið notuð fyrir hátíðarsamkomur og safnaðarsalur hennar hefur nýst fyrir sýningar á vegum Snorrastofu og hvers kyns móttökur, fundi og ráðstefnur.

 

Snorrastofa gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu Reykholts, en með stuðningi og í samvinnu við fjölmarga aðila er henni ætlað að beita sér fyrir viðgangi Reykholts sem menningar- og ráðstefnuseturs.

 

Stofnanir og fyrirtæki í Reykholti

Snorrastofa

Menningar- og miðaldasetur í Reykholti, sem komið hefur verið á fót til minningar um Snorra Sturluson. Stofnuninni er ætlað að sinna og stuðla að rannsóknum og kynningu á miðaldafræðum og sögu Reykholts og Borgarfjarðar sérstaklega. Húsnæði stofnunarinnar er við hlið hinnar nýju kirkju í Reykholti, en þar er gott bókasafn, skrifstofa, gestaíbúð fyrir fræðimenn og rithöfunda og vinnuaðstaða fyrir fræðastörf. Á vegum Snorrastofu eru haldin námskeið, ráðstefnur og fundir og settar upp sýningar er tengjast þessum viðfangsefnum. Meðal annars er stuðlað að fjölþjóðlegum og þverfaglegum rannsóknum er tengjast Íslandi, og þá ekki síst hvað varðar Snorra Sturluson.

 

Snorrastofa veitir ferðamönnum þjónustu og fræðslu. Ferðamóttakan hefur aðstöðu í tengibyggingu kirkjunnar og Snorrastofu, en þar er seldur aðgangur að sýningum, rekin minjagripaverslun og veitt ýmis þjónusta við ferðamenn.

  

Reykholtskirkja

Sóknarprestur Reykholtsprestakalls er séra Geir Waage. Í kirkjunni er sérlega góður hljómburður sem dregur að tónlistarfólk víðs vegar af landinu.

 

Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar unga fólksins

og Reykholtskórsins

 

Reykholtshátíð

Viðamikil og virt tónlistarhátíð, sem haldin er í Reykholtskirkju  í lok júlímánaðar ár hvert. Flutt er sígild tónlist með norrænu og baltnesku yfirbragði.

 

Frá Reykholtshátíð

 

Fosshótel í Reykholt
 

Þjóðminjasafns Íslands

Í Reykholti stóðu yfir umfangsmiklar fornleifarannsóknir á árunum 1998 til 2007.

 

Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn

Varaeintakasafn er í austurálmu Skólahússins.